Já góðann og blessaðann daginn.
Já ég veit, ég veit að það er býsna langt síðan að ég kom með blogg, en það er því um að kenna að ég er ekki búin að komast í tölvu, sökum annríkis. Það er allt vitlaust í skólanum, ég er að taka einhverjar 25 einingar eða svo, svo var vistarráðsfundur og læti bara.
Svo er ég núna með tvo hesta á Króknum, bæði Gný og Kapal, en það er bara gaman, og það gengur vel.
Draumar
Draumar eru nauðsynleigir fyrir lífið. Það er hlutur sem að enginn getur tekið af manni, en það er hægt að hafa áhrif á þá, með orðum og gjörðum, og bæði að góðu og illu. Það getur enginn séð draumana sem mann dreymir og enginn getur hneigslast á þeim. Og að því leitinu til er allt gott við draumana, svo lengi sem að þeir fara ekki útí eitthvað rugl sem að getur ekki átt sér nokkurn tilverurétt. Þannig er það nú bara.
Hvað er hatur? Ég held að að fáir viti hvað þetta er rosalega stórt og mikið orð, og enn færri sem vita hvað það þýðir. Hugsið aðeins um það
Vegna þess að ég er kvenmaður og er ekki samkynhneigð, þá hef ég verið að hugsa alveg útí þaula þessa karlmenn, en eins og flestir sem að mig þekkja vita að þeir eru í miklu uppáhaldi hjá mér, eða allavegana flestir. Og allar mínar vinkonur hafa nú undanfarið lent í einhverskonar drama, sem er bara gaman og gott, og jafnvel fróðlegt ef að þannig er litið á það, og ég hef verið að reyna að ráða þessa ráðgátu, og niðurstaða mín er;
Við getum ekki lifað með þeim, en við getum alls ekki lifað án þeirra !!!
Hugsið núna aðeins um það...
-Heiðrún Ósk Jakobínudóttir